Um okkur
Farice hf var stofnað í september 2002 í þeim tilgangi að undirbúa og reka sæstrenginn FARICE-1. Mikil áhersla var lögð á samstöðu aðila um stofnun Farice enda var ný fjarskiptatenging Íslands og Færeyja hagsmunamál allra íbúa svæðanna.
Íslenskir hluthafar Farice eiga 80% hlutafjárins og færeyskir hluthafar 20%. Í árslok 2003 stofnuðu þrír stærstu hluthafar íslenska hópsins með sér Eignarhaldsfélagið Farice ehf (sem gengur undir nafninu E-Farice) til að fara með hlut sinn í félaginu. Sæstrengurinn DANICE var lagður af E-Farice.
Hluthafar í E-Farice eru:
- HS Orka hf
- Landsvirkjun
- Orkuveita Reykjavíkur
- Íslenska ríkið
- Skipti hf
- Og fjarskipti ehf (Vodafone)
Hluthafar Farice eru:
- E-Farice (Ísland)
- Faroese Telecom (Færeyjar)
- Vodafone Faroe Islands (Færeyjar)
- Aðrir, í Færeyjum og á Íslandi

