Öryggismál

Sæstrengurinn er hannaður samkvæmt ýtrustu öryggiskröfum. Sé minnsti möguleiki á að veiðarfæri hafi rekist í strenginn eða raskað nánasta umhverfi hans er viðkomandi vinsamlega beðinn að hringja strax í neyðarlínuna í síma +354 550 6370.

Veiðar niður við sjávarbotn eða ólögleg losun þungra hluta í sjó gætu skaðað strenginn og skapað viðkomandi skipi og áhöfn ómælda hættu. Verði strengurinn fyrir hnjaski gæti það orsakað röskun á flutningsgetu og jafnvel haft efnahagsleg áhrif á þjónustusvæði Farice. Viðgerð á sæstreng er bæði tímafrek og kostnaðarsöm og sá sem veldur skaðanum gæti orðið fjárhagslega ábyrgur.

Tenglarnir til hægri vísa á vefsíður með öryggisreglum og upplýsingum um hvað beri að gera í neyðartilfellum. Upplýsingar um staðsetningu Farice strengsins er að finna á fiskveiðatengli hér á síðunni.

Fiskveiðar hafa verið aðalatvinnuvegur Íslands og Færeyja um aldir. Samskipti Farice við aðila í sjávarútvegi og sjóflutningum byggist á sameiginlegum öryggismarkmiðum.

 

 

Innskráning



A

Upplýsingaaðgengi

Bottom_biotaMargar stofnanir og öryggisfyrirtæki veita upplýsingar um hvernig megi forðast árekstra við neðansjávarstrengi eins og sjá má á tenglunum hér fyrir neðan.

UKCPC

OFCC

ICPC

SCIG

KIS-CA

 

 

Útlit síðu:

safety