Framtíðarsýn

Alheims aukning í stafrænum fjarskiptum kallar á langtíma áæltanir og tækniúrlausnir sem standa tímans tönn. Mikilvægir þjóðarhagsmunir þeirra landa sem liggja að norður Atlantshafi eru í húfi. Raunhæf framtíðarsýn byggir á fyrirsjáanlegri flutningsþörf, hagvaxstarspám og efnahagslegum forsendum svæðisins. Forsendur varðandi rekstur strengsins byggjast á skilningi á eftirfarandi grundvallaratriðum:

  • Hönnun og uppbygging netkerfa
  • Eiginleikum nýrra flutningsmiðla og kapaltækni
  • Þróun á sendinga- og/eða merkjakerfum
  • Þróun í stafrænni þjöppunartækni
  • Áhrif gagnaslórs eða gloppusendinga innan netkerfa
  • Stoðtengingum gegnum gerfihnetti og önnur sérstæð fjarskiptakerfi
  • Ávinning samtenginga við samhæfð gagnaflutningskerfi

Langtíma áætlanagerð krefst skilnings á efnahagslegam forsendum jafnt og fyrrnefndum grundvallaratriðum um rekstur sæstrengja. Verði breytingar á forsendum er mikilvægt að áætlanir séu sveigjanlegar svo ný tækifæri verði nýtt til hins ýtrasta. Öll áætlanagerð verður að byggja á nýtingu nýjustu tækni á hverjum tíma, lágmarka kostnað í rekstri, en jafnframt viðhalda órofnu aðgengi notenda að viðskiptasvæðum heimsins.

Landfræðileg tengimörk Farice eru þrjú:

  • Kanada og norðausturhluti Bandaríkjanna
  • Írland, Skotland og England
  • Danmörk og Noregur

Tenging við þessi efnahagssvæði býður upp á tæknilega kosti en opinberar jafnframt veikleika kerfisins. Samhæfing ólíkra kerfa mun styrkja hámarksnýtingu, koma í veg fyrir slór og tryggja stöðugleika. Það er mikið í húfi því þessi þrjú tengimörk tengja okkur inn á nærliggjandi efnahagssvæði og viðar.

 

 

Útlit síðu:

front2